Óborganleg skemmtun 31. ágúst 2005 00:01
Hagyrðingar landsins eru óðum að koma sér í réttar stellingar fyrir landsmótið á Hótel Sögu á laugardag. Sigurður Sigurðarson dýralæknir, kvæðamaður og hagyrðingur hefur sótt tólf af sextán landsmótum og hlakkar mjög til. Hann missti af tveimur fyrstu mótunum og var í útlöndum við rannsóknir þegar tvö síðustu voru haldin. "Ég hlakka mjög til enda er þetta óborganleg skemmtun," segir Sigurður. Vitaskuld fljúga vísurnar milli manna á landsmótinu og það var einmitt við slíkt tækifæri sem meðfylgjandi vísa varð til. Karl og kona stóðu saman og eins og gengur spurði frúin um almennt heilsufar. Karl svarði því til að læknarnir segðu að allt væri að bila, bæði haus og fætur. Hann væri hins vegar ekki viss um að þetta væri rétt, í það minnsta væri miðjan enn í góðu lagi. Varð henni þá umsvifalaust að orði: Dunar fjör og dans um nætur dátt með hopp og brun og svig. Þótt hæpið sé með haus og fætur er helst að miðjan standi sig. Svaraði hann þá um hæl: Sú var tíð hún sveik mig ekki sitt af hverju hefur reynt. En alltaf stóðst hún Amors hrekki, þótt örvum væri þangað beint.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira