Innlent

Kettlingar fundust í pappakassa

"Þetta er alveg ótrúleg mannvonska gagnvart dýrunum," sagði Ómar Dabney hjá meindýravörnum Reykjavíkurborgar um fund sinn í Heiðmörk fyrir fáeinum dögum. Þá gekk hann fram á pappakassa sem í voru tveir kettlingar. Matur hafði verið settur hjá þeim. Í gærdag var Ómar svo að leita að læðu með þrjá nýgotna kettlinga, sem tilkynnt hafði verið um í fjörugrjótinu á Seltjarnarnesi. Hún átti einnig að fara í Kattholt. "Það var enn ilmvatnslykt af kettlingunum sem ég fann í Heiðmörkinni," sagði Ómar. "Þeir hafa því ekki verið búnir að hírast lengi þarna." Hann fór með þá í Kattholt þar sem hlúð var að þeim. Þeim hefur nú verið komið fyrir saman á góðu heimili. Hundrað óskilakettir eru nú í Kattholti, að sögn Sigríðar Heiðberg. Hún sagði, að af þeim væru þrjátíu úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Bessastaðahreppi. Þessi sveitarfélög neituðu að greiða fyrir þá viku sem kettirnir hefðu verið í Kattholti. Sá kostnaður lenti því á Kattavinafélaginu. Ómar hvatti gæludýraeigendur til að koma dýrunum fyrir í góðri gæslu þegar þeir færu í sumarfrí, ellegar láta svæfa þau ef þeir hefðu ekki tök á að halda þau. Að setja þau á guð og gaddinn væri samviskulaus aðferð til að losna við að borga nokkra þúsundkalla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×