Kettlingar fundust í pappakassa 31. maí 2005 00:01 "
Þetta er alveg ótrúleg mannvonska gagnvart dýrunum," sagði Ómar Dabney hjá meindýravörnum Reykjavíkurborgar um fund sinn í Heiðmörk fyrir fáeinum dögum. Þá gekk hann fram á pappakassa sem í voru tveir kettlingar. Matur hafði verið settur hjá þeim. Í gærdag var Ómar svo að leita að læðu með þrjá nýgotna kettlinga, sem tilkynnt hafði verið um í fjörugrjótinu á Seltjarnarnesi. Hún átti einnig að fara í Kattholt. "Það var enn ilmvatnslykt af kettlingunum sem ég fann í Heiðmörkinni," sagði Ómar. "Þeir hafa því ekki verið búnir að hírast lengi þarna." Hann fór með þá í Kattholt þar sem hlúð var að þeim. Þeim hefur nú verið komið fyrir saman á góðu heimili. Hundrað óskilakettir eru nú í Kattholti, að sögn Sigríðar Heiðberg. Hún sagði, að af þeim væru þrjátíu úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Bessastaðahreppi. Þessi sveitarfélög neituðu að greiða fyrir þá viku sem kettirnir hefðu verið í Kattholti. Sá kostnaður lenti því á Kattavinafélaginu. Ómar hvatti gæludýraeigendur til að koma dýrunum fyrir í góðri gæslu þegar þeir færu í sumarfrí, ellegar láta svæfa þau ef þeir hefðu ekki tök á að halda þau. Að setja þau á guð og gaddinn væri samviskulaus aðferð til að losna við að borga nokkra þúsundkalla.
Fréttir Innlent Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent