Friður tryggður á vinnumarkaðnum 16. nóvember 2005 03:30 Samkomulagið undirritað. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, við undirritun í gær. "
Það er fjarri lagi að þetta sé einhver óskasamningur og ekki hægt að túlka þetta sem einhvern sigur af okkar hálfu," segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, eftir að samkomulag náðist við Alþýðusamband Íslands um breytingar á gildandi kjarasamningum. Hannes telur samninginn vera kostnaðarsaman fyrir atvinnulífið þar sem um 0,65 prósenta varanlega launahækkun sé að ræða. "Auðvitað erum við þó sátt við að samningar skuli halda," segir Hannes. "Það er langur aðdragandi að þessu samkomulagi," segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Grétar segir allt það sem fram hafi komið í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í gær hafa mikil áhrif. "Stærsta málið er þó væntanlega framlag ríkisstjórnarinnar til örorkumála, enda hefur örorkubyrðin verið að sliga marga af okkar lífeyrissjóðum þannig að komið hefur til skerðingar á lífeyrisréttindum," segir Grétar. Þessi aðkoma ríkisins er í áföngum á þriggja ára tímabili og hefst árið 2007. "Þar er stigið myndarlegt skref því að óbreyttu hefðu mun fleiri lífeyrissjóðir orðið að skerða sínar greiðslur," segir Grétar. Hann telur að nú hafi verið komið í veg fyrir þá neikvæðu þróun á næstu árum. Aðstoð ríkisins við lífeyrissjóðina nemur 0,25 prósentum af tryggingargjaldi en á núvirði nemur það um 1,5 milljörðum. "Nú sjáum við einnig hækkun og tekjutengingu á atvinnuleysisbótum sem kemur til með löggjöf eftir áramótin," segir Grétar. Hann telur það munu verða mestu breytingar á atvinnuleysisbótalögjöfinni frá upphafi. "Við höfum einnig verið í afar erfiðum málum með starfsmannaleigurnar, sem hafa haft rangt við svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir samfélagið allt að hægt sé að koma betur böndum á þess háttar starfsemi." Í aðkomu ríkisstjórnarinnar felst frumvarp til laga um starfsmannaleigur sem taka skulu gildi fyrir áramót. Fjögur atriði réðu úrslitum Fjögur meginatriði réðu því að samkomulag náðist milli Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands í gær um að forsendur héldust fyrir gildandi kjarasamningum. * Þátttaka ríkisins í orörkubyrði lífeyrissjóðanna var staðfest með framlagi sem nemur 0,25 prósentum af tryggingagjaldi sem að núvirði er 1,5 milljarðar. Þessi fjárframlög hefjast árið 2007 og ná til ársins 2009. * Lög um hækkun og tekjutengingu atvinnuleysisbóta verða samin og afgreidd á vorþingi. * Frumvarp til laga um starfsmannaleigur var lagt fyrir Alþingi í gær og verður samþykkt fyrir áramót. * Eitt hundrað milljónum verður varið úr ríkissjóði til endurmenntunar ófaglærðs starfsfólks. Þessum fjórum atriðum til viðbótar kemur 26 þúsund króna eingreiðsla til launþega í desember auk 0,65 prósenta hækkunar á taxta í janúar 2007.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Sjá meira