Innlent

Óvissunni hefur verið eytt

Glatt  á hjalla í ráðherrabústaðnum. Það var létt yfir þeim Árna Mathiesen fjármálaráðherra, Baldri Guðlaugssyni ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, Bolla Þór Bollasyni ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneyti, Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum í gær.
Glatt á hjalla í ráðherrabústaðnum. Það var létt yfir þeim Árna Mathiesen fjármálaráðherra, Baldri Guðlaugssyni ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, Bolla Þór Bollasyni ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneyti, Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum í gær.

Ríkisstjórnin fagnar samkomulagi Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem náðist seinni partinn í gær. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir niðurstöðuna draga úr verðbólgu og auka stöðugleika.

"Óvissan hefur verið mikil, en sú vissa að samningar haldi skiptir miklu máli fyrir stöðugleikann," sagði Halldór og kvað ríkisstjórnina hafa lagt mikið á sig svo það mætti verða. Hann sagði ljóst að örorkumálin vægju þyngst í því sem ríkisstjórnin hefði lagt af mörkum. "Það á að vísu eftir að útfæra nánar, en samstaða er um það að samræma þessar reglur."

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga var kynnt síðdegis í gær á fundi með fulltrúum atvinnulífsins og ráðherrunum fjórum sem mynda ríkisfjármálaráð, en það eru Halldór Ásgrímsson, Árni Mathiesen, Geir H. Haarde og Árni Magnússon.

Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir mjög gott að samningar haldist í gildi og greinilegt að menn hafi lagt heilmikið á sig til að ná því markmiði fram. "Vinnuveitendur taka á sig hækkanir og ríkið tekur líka á sig ákveðna hluti í örorkubótamálum," segir hann, en kostnaður ríkisins af aðgerðum vegna örorkubóta nemur allt að 1,5 milljörðum króna. "Auðvitað á eftir að vinna töluvert í þessu og hluti af þessu að ríkið og aðilar vinnumarkaðar sem að lífeyrissjóðunum standa vinni að þessum hlutum saman." Árni segir hækkun og tekjutengingu atvinnuleysisbóta alfarið vera samningsatriði milli aðila vinnumarkaðarins þó að stjórnin taki að sér að beita sér fyrir nauðsynlegri lagabreytingu vegna þeirra hluta.

"Um atvinnuleysis­tryggingasjóð sem standa á straum af þessu gilda lög, en undir sjóðnum stendur atvinnutryggingagjaldið sem vinnuveitendur borga."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×