Trillukarl með mál til Evrópudómstólsins 16. nóvember 2005 06:00 Ragnar Aðalsteinsson, sem er lögmaður trillukarlsins, segir eignarréttinn njóta verndar í viðauka við Mannréttindadómstól Evrópu.
Maður sem dæmdur var í Hæstarétti fyrir brot á fiskveiðilöggjöf fyrir um hálfu ári síðan hefur vísað máli sínu til Mannréttindadómstóls Evrópu. Ekki liggur fyrir hvort dómstóllinn tekur málið upp, en strangar reglur gilda um hvaða mál eru tekin þar fyrir og vegna mikils fjölda mála tekur nokkurn tíma hjá dómnum að afgreiða mál. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður mannsins, staðfesti að málinu hefði nýlega verið skotið til Mannréttindadómstólsins, en segist löngu hættur að reyna að giska á hvenær mál fái afgreiðslu hjá dómnum. Meðferðartíminn getur reynt mjög á þolrif þeirra sem bíða niðurstöðu, segir hann. Ragnar segir að í dómi Hæstaréttar frá því í apríl sem skotið hefur verið til Mannréttindadómstólsins hafi maður verið dæmdur til refsingar fyrir veiðar í netlögum eigin jarðar. Með því segir hann nýtingarrétt hafa verið tekinn af eiganda jarðarinnar og færðan til annarra óviðkomandi. Með erindi til Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið ákveðið að láta reyna á réttindi eigenda jarða til fiskveiða í sínum eigin netlögum, en eignarréttur nýtur verndar samkvæmt fyrsta viðauka við Mannréttindadómstól Evrópu. Þá segir Ragnar standa fyrir dyrum að eigendur sjávarjarða höfði einkamál fyrir íslenskum dómstólum þar sem látið verði reyna á réttindi í netlögum í heild sinni. Það gæti orðið eftir einhverjar vikur en að svo stöddu þori ég ekki að nefna dag. Á vettvangi Mannréttindadómstólsins er í skoðun að hætta að taka við málum sem til hans er beint af einstaklingum, að því er kom fram í nýlegu viðtali blaðsins við Davíð Þór Björgvinsson, dómara við dómstólinn. Hann segir að fyrr en síðar verði dómstóllinn að grípa til aðgerða vegna mikils fjölda mála sem til hans er beint. Davíð segir meðalbiðtíma eftir úrskurði vera tvö til þrjú ár, en stærri prófmál geti tekið allt að tíu árum í meðförum dómsins.
Innlent Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Framsóknarflokkurinn mælist aftur inni Áttatíu starfsmenn í biðstöðu og HM-hópur Íslands Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Sjá meira