Birtu myndband af árás á Abu Ghraib 16. desember 2005 22:55
Al-Qaida liðar í Írak hafa sent frá sér myndband þar sem árás þeirra á Abu Ghraib fangelsið nærri Bagdad fyrr á árinu er útlistuð. Markmið árásarinnar var að sprengja sér leið inn í fangelsið og frelsa fanga ásamt því að valda Bandaríkjamönnum sem mestu tjóni. Tugir al-Qaida liða blésu til árásar á Abu Ghraib fangelsið, vestur af Bagdad annan apríl síðastliðinn, en fangelsið komst í heimsfréttirnar á síðasta ári þegar upp komst að fangar þar hefðu verið beittir harðræði og pyntingum. Árás al-Qaida var hrundið en einn árásarmannanna lést og ríflega 50 hermenn og fangar særðust í áhlaupinu. Á myndbandi sem birt var á heimasíðu íslamskra uppreisnarmanna fyrr í vikunni er greint frá því hvernig árásin var skipulögð og sýndar myndir af vettvangi átakanna. Þar að auki renna yfir skjáinn þær myndir af föngum í Abu Ghraib sem fyrir löngu eru orðnar frægar um allan heim. Fram kemur á myndbandinu að markmiðið með árásinni hafi annars vegar verið að frelsa uppreisnarmenn og hins vegar að valda Bandaríkjamönnum sem mestum skaða og þannig blása baráttuanda í vígamenn í Írak. Samkvæmt myndbandinu var ætlunin að ráðast á fangelsið á fjórum stöðum. Sprengja átti gat á fangelsisvegginn á tveimur stöðum með öflugum bílsprengjum og í kjölfarið senda fleiri farartæki hlaðin sprengiefni inn um götin. Á tveimur öðrum stöðum áttu fsvo ótgönguliðar að skjóta á fangelsið með eldflaugum og dreifa þannig athygli öryggissveita. Myndir af eldflaugaárásunum sjást á myndbandinu ásamt mönnum sem sagðir eru þeir sem óku sjálfsmorðsárásarbílunum að fangelsinu. Bandarísk yfirvöld hafa ekki greint frá því hvernig atburðir þróuðust þennan dag og því er ekki vitað hversu nákvæmlega árásarmennirnir fylgdu áætluninni.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira