Enn eitt ránið í Svíþjóð 16. desember 2005 09:58
Peningaflutningabíll frá Securitas var rændur skammt frá Södertälje, suður af Stokkhólmi, í Svíþjóð nú í morgun. Ræningjarnir notuðu sjálfvirka riffla og sprengjur við ránið sem er að verða algeng aðferð við rán í Svíþjóð. Upp úr klukkan fjögur í morgun stöðvuðu tveir vopnaðir menn peningaflutningabílinn og hleyptu af skotum til að þvinga öryggisverðina út úr bílnum. Þeir sprengdu síðan upp peningageymslu bílsins með kröftugu sprengiefni þannig að aftari hluti bílsins nær hvarf og er gjörónýtur. Öryggisverðirnir urðu þó ekki fyrir líkamlegum meiðslum. Bíll ræningjanna fannst alelda við ránsstaðinn og vitni segjast síðan hafa séð leigubíl hverfa af vettvangi á miklum hraða. Lögreglan hefur sett upp vegatálma á stóru svæði til að freista þess að finna bílinn og eru miklar umferðatafir af þeim sökum til og frá Stokkhólmi. Rán sem þetta eru að verða æ algengari í Svíþjóð og lögreglu hefur reynst erfitt að hafa hendur í hári ræningja. Aðeins er mánuður síðan öryggisverðir fóru í verkfall til að þrýsta á um aukið öryggi í peningaflutningum. Skilyrði sem stjórnvöld settu þá, eins og að litasprengjur sem eyðileggja peninga við rán væru í öllum peningatöskum og peningaflutningabílum, virðast þó ekki hafa verið framfylgt. Ekki er ljóst hversu miklu fé ræningjarnir hafa náð með sér í þetta skiptið, en í undanförnum ránum hefur það hlaupið á milljónum.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira