Landnemar fluttir úr bænahúsum 18. ágúst 2005 00:01
Landnemar á Gasa-svæðinu öskruðu og æptu þegar ísraelskar sveitir létu til skarar skríða gegn þeim í dag. Fólkið var flutt úr bænahúsum með valdi. Harkan sex var boðorðið í dag og ísraelskir hermenn fylgdu því eftir, þó að sumum þeirra hafi verið það á móti skapi. Fimmtíu þúsund lögreglu- og hermenn voru til reiðu en þetta er stærsta hernaðaraðgerð Ísraels á friðartímum. Og voru bænahús í tveimur landnemabyggðum miðpunktar aðgerða í dag. Hundruð óvopnaðra lögreglu- og hermanna réðust inn í bænahús í einni stærstu landnemabyggðinni, Neveh Dekalim, þar sem um fimmtán hundruð harðlínuþjóðernissinnar höfðu komið sér fyrir. Þeir köstuðu öllu lauslegu í sveitirnar en létu sér annars nægja að öskra og æpa. Áður hafði verið samið um að enginn myndi beita skotvopnum, hvorki mótmælendur né lögregla. Lögreglur í óeirðabúningum réðust inn og báru illskeytt ungmenni út. Lögreglumenn beittu þrýstivatnsbyssum á mótmælendur sem héldu til á þaki bænahússins, þaðan sem þeir köstuðu eggjum og ljósaperum fylltum málningu. Hersveitir slökuðu eins konar búrum að þakinu og þangað var mótmælendunum skóflað inn. Konur og börn fengu að fara í friði. Ísraelskir embættismenn eru mjög ánægðir með gang mála og segja yfir áttatíu prósent landnema á Gasa hafa yfirgefið svæðið.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira