Innlent

Trúnaðarbrestur í Landakotsskóla

"Ég hafði ekki áhuga á því að vinna áfram í Landakotsskóla í nýjum aðstæðum, það varð breyting á rekstrarforminu, ný stjórn tók við. Ég kærði mig ekki um að vinna áfram með þessari nýju stjórn," segir séra Hjalti Þorkelsson fráfarandi skólastjóri Landakotsskóla sem sagði starfi sínu lausu 3. júní síðastliðinn. Í maí sagði Gunnar Örn Ólafsson formaður rekstrarfélags skólans Bessí Jónsdóttur aðstoðarskólastjóra upp störfum. Bessí leitar nú lagalegs réttar síns því hún telur að með uppsögninni hafi verið brotið á sér bæði lagalega og siðferðislega. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins undi Hjalti uppsögn Bessíar illa og óskaði eftir því í kjölfarið að fá óskorað umboð til að sjá um starfsmannamál í skólanum. Ósk Hjalta um umboðið var hafnað af Gunnari Erni í byrjun mánaðarins. Í gærdag fóru fram fundir í Landakotsskóla vegna breytinganna í skólanum. Irena Kojic formaður kennararáðs Landakotsskóla segir að á fundum dagsins hafi skólayfirvöld ákveðið einhuga að halda áfram því góða starfi sem unnið væri í skólanum. Hún sagði undirbúning fyrir næsta skólaár vera hafinn. Irena sagði kennararáð hafa umboð til að ráða nýjan skólastjóra og kennara. Foreldrar barna í Landakotsskóla efndu til fundar í Reykjavíkurakademíunni síðdegis í gær. Um 90 manns mættu á fundinn. Séra Hjalti tók til máls í byrjun fundar og lýsti þar ástæðum ákvörðunar sinnar. Á fundinum var samin ályktun þar sem því var lýst yfir að foreldrar barna við skólann hefðu þungar áhyggjur af því ófremdarástandi sem skapast hefði í skólanum síðustu vikurnar. Skorað var á stjórn Landakotsskóla að ráða Hjalti á ný sem skólastjóra og að frumforsenda fyrir því væri að skólastjórn veitti Hjalta fullt og óskorað umboð til að fara með starfsmannamál. Að lokum var farið fram á það að skólastjórn héldi fund með foreldrum barna við Landakotsskóla. Áskorunin var samþykkt einróma af viðstöddum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×