Innlent

Íslendingar sækja Ísland heim

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í apríl alls staðar á landinu miðað við sama mánuð í fyrra, eða um níu prósent. Fjölgunin er einvörðungu vegna Íslendinga því erlendum gestum hefur ekki fjölgað. Langmeseta aukningin var á Suðurlandi þar sem þær voru liðlega sjö þúsund og hafði fjölgað um 35 prósent miðað við apríl 2004. Þeim fjölgaði minnst á Norðurlandi, eða um tvö prósent. Skýringin á aukinni hótelgistingu Íslendinga er talin vera aukin markaðssetning því fjölgunin er einkum í tengslum við styttri ferðir og árshátíðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×