Innlent

Veðrið var vont til landbúnaðar

"Það hefur verið viðloðandi norðaustanátt, þurrkar og sólskin. Það var ekki teljandi úrkoma nema við norðausturströnd landsins. Sérstaklega hefur verið þurrt suðvestanlands," segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, um veðurfar á Íslandi í maímánuði. Meðalhiti á landinu var rétt undir meðallagi. Þetta var kaldasti maímánuður í Reykjavík frá 1993 og kaldasti maí á Akureyri frá 1995. "Vorið fór vel af stað, þetta leit vel út í aprílmánuði. Frost fór snemma úr jörðu og menn horfðu fram á gott sumar. En maímánuður var bæði þurr og kaldur auk þess sem mikið var um næturfrost, " segir Ólafur Dýrmundsson, landsráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands. Ólafur segir að kornræktendur hafi miklar áhyggjur af því að korn sem sáð var í lok apríl og byrjun maí hafi skemmst vegna veðurfarsins. Spretta er lítil á túnum, sem getur haft áhrif á heyfeng sumarsins, og í úthögum er einnig lítil spretta, sem þýðir að bændur þurfa að gefa sauðfé hey sem hefur í för með vinnu og tilkostnað. "Þetta með kaldari vorum," segir Ólafur. Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu í Hrútafirði, segir svipaða sögu af veðrinu og Ólafur. "Það er ljóst að kornrækt og slætti mun seinka. Ég hef ekki trú á því að það verði neinn sláttur hér á svæðinu fyrr en fyrstu vikuna í júlí. Það þarf að fara að hlýna í veðri. Við eigum samt ekki að mála skrattann á vegginn strax," segir Gunnar. "Bæði frostið og þurrkarnir seinka öllu hjá okkur. Menn hafa ekki plantað út, það er ekki gæfulegt að planta meðan enn eru næturfrost. Veðurfarið kemur niður á allri útiræktun grænmetis. Sólskinið í maí hefur hins vegar verið jákvætt fyrir ylrækt, ræktun á inniræktuðu grænmeti," segir Guðjón Birgisson, grænmetisframleiðandi og eigandi Íslensks grænmetis ehf. á Flúðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×