Innlent

Gistinóttum fjölgar

Íslenskum hótelgestum fjölgaði stórlega í öllum landshlutum í aprílmánuði síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Fjöldi gistinótta útlendinga stendur hins vegar í stað. Þetta kemur fram í úttekt Hagstofunnar. Hótel á Austurlandi bættu við sig flestum gistinóttum, rúmlega þriðjungi. Alls voru gistinæturnar á landinu 77.590 í apríl á þessu ári, rúmlega sex þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra. Hagstofan rekur ástæðuna fyrir tíðari hótelgistingum Íslendinga til þess að þeir séu farnir að nýta sér hótel í auknum mæli í styttri ferðum og á árshátíðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×