Innlent

Verðlaunað fyrir öryggisvitund

Áhöfnin á ísfisktogaranum Kaldbaki EA 1 hlýtur í ár viðurkenningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund eftir að hafa sótt námskeið hjá Slysavarnaskóla Landsbjargar. Landsbjörg hefur ákveðið að veita þessa viðurkenningu árlega, en um er að ræða farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Verðlauninn verða framvegis veitt á sjómannadaginn og þannig var það einnig í gær. Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, afhenti viðurkenninguna og veitti Gunnar Gunnarsson, útgerðarstjóri hjá Brimi hf., henni mótttöku fyrir hönd áhafnar Kaldbaks EA 1. Athöfnin fór fram í Slysavarnaskóla sjómanna um borð í Sæbjörgu skólaskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×