Innlent

Aðeins önnur tillagan kynnt

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin um skipulagsmál á Seltjarnarnesi en áhugahópur um betri byggð á Seltjarnesi stóð fyrir því að leitað væri leiða til að bjóða upp á annan valkost en þann sem bæjarstjórnin hafði samþykkt. Hópurinn er hins vegar óánægður með að bæjarstjórnin er aðeins búin að greina frá þeirri tillögu sem hún stendur að. "Við skiljum ekki hvernig atkvæðagreiðsla getur hafist um eitthvað tvennt þegar einungis annars kosturinn er þekktur," segir Þór Whitehead, félagi í áhugahópnum. Skipulagsstofnun ríkisins neitaði á sínum tíma að afgreiða tillögu bæjarstjórnar. Í kjölfarið var komið á fót rýnihópi sem átti að starfa að því með skipulagsnefnd bæjarins að setja fram annan valkost og fá heildarsýn yfir skipulagsmál bæjarins þar sem aðalskipulag Seltjarness var útrunnið. "Báðar tillögurnar sem kosið verður um eru byggðar á vinnu rýnihópsins og hefur hvorug verið sett fram áður. Greint verður frá þeim í þessari viku þegar kynningargögn eru tilbúin," segir Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×