Loks úrkoma á Suðvesturlandi 6. júní 2005 00:01
Fyrsta alvöru úrkoman hér á landi í meira en þrjár vikur féll á vestan- og suðvestanvert landið í morgun og er spáð töluverðri rigningu víða á þessu svæði næsta sólarhringinn. Bændur fagna rigningunni eftir þurrkinn að undanförnu en bændur í suðausturhluta landsins þurfa að bíða lengur eftir almennilegri vætu. Einhver mesti þurrkur á landinu er nú í jörð á Suðausturlandi en á veðurathugunarstöðinni í Akurnesi, skammt frá Höfn í Hornafirði, hefur ekki mælst eins lítil úrkoma í maí frá því mælingar hófust í kringum 1930. Úrkoman í síðasta mánuði mældist fjórir millímetrar en meðalúrkoma í maí á þessum slóðum eru 96 millímetrar. Þótt varla hafi komið dropi úr lofti nánast um allt land undanfarnar þrjár vikur býr jarðvegur á vestan- og suðvestanverðu landinu að því að síðastliðinn vetur var úrkomusamur. Hið sama gildir ekki um Norðausturland og suðaustanvert landið. Bændur fyrir vestan hafa margir hverjir fagnað vætunni sem loks gerði vart við sig í morgun enda sprettan verið afar lítil undanfarið. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að lægðin sem nú er við landið komi að vestan þannig að mest væta er á vestan- og suðvestanverðu landinu. Hún muni hins vegar ekki vera tiltakanlega mikil á Suðausturlandi, í það minnsta ekki eins menn þekkja rigningu þar um slóðir, en þetta sé einn úrkomusamasti staður landsins. Ef sprettan eigi að taka verulega við sér þurfi mun meiri úrkomu og úrkoman þurfi helst að mælast í tugum millímetra á einhverju tilteknu tímabili á þeim slóðum. Einar segir að sums staðar, og þá sérstaklega þar sem úrkoma í vetur hafi ekki verið mikil, hljóti sprettan að vera sein og jafnvel engin en mjög víða á landinu hafi úrkoma verið mikil í vetur þannig að jarðvegurinn njóti þess enn í dag. Suðaustan- og austanlands hafi þó verið þurrt mjög lengi þannig að hann telji að gróður þar sé langt á eftir gróðri í öðrum landshlutum.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira