Innlent

Spartakus og Ljósálfur í skrár

Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um endurupptöku á málum þar sem nöfnunum Annarósa og Eleonora var synjað um staðfestingu. Hins vegar hefur nefndin samþykkt karlmannsnöfnin Spartakus og Ljósálfur ásamt kvenmannsnöfnunum Elínheiður og Janetta. Þá fékk millinafnið Diljan náð fyrir augum nefndarinnar en nafninu Hnikarr og Mar sem kvenmannsnafn var hins vegar hafnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×