Orkuveitan í baðrekstur 6. júní 2005 00:01
Orkuveita Reykjavíkur vinnur að hönnun gistiaðstöðu og baðsvæðis í landi fyrirtækisins á Nesjavöllum. Nýta á náttúrulegt afrennsli frá jarðhitasvæðinu til baðsvæðisins sem svipar til þess rekstrar sem Bláa lónið er með í Svartsengi á Reykjanesi. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að auglýst hafi verið eftir samstarfsaðilum fyrir um ári síðan og fyrirtækið Saga heilsa og spa ehf. hafi orðið fyrir valinu. Nú sé unnið að því að þróa og hanna samstarfið. Hann segir að ekki sé gert ráð fyrir álíka stóru baðsvæði og í Bláa lóninu. "Nei, ég held að það verði ekki jafn stórt en það er unnið að því að þróa þetta samstarf hér innan Orkuveitunnar og þegar þeirri vinnu er lokið verður tilkynnt þar um," segir Guðmundur. Hann segir hugmyndina byggjast á svipuðum forsendum og samstarf Orkuveitunnar í nýrri frístundabyggð við Úlfljótsvatn en þá leggur Orkuveitan til landsvæði og fær aðra aðila sem séu sérfróðir á því sviði sem við á að hverju sinni til að þróa verkefnið áfram. Þannig er staðið að verki með Klasa ehf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, í landinu við Úlfljótsvatn. Guðmundur Björnsson, læknir og framkvæmdastjóri Saga heilsa og spa ehf., segir að nú sé unnið að gerð viðskiptaáætlana fyrir heilsutengda ferðaþjónustu á Nesjavallasvæðinu. Hann segir þó að málið sé enn á frumstigi því fyrst þurfi að gera markaðsrannsóknir og kanna arðsemi slíkrar fjárfestingar og því sé ekki hægt á þessu stigi að slá því algjörlega föstu að af framkvæmdunum verði. Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, segist út af fyrir sig fagna því að keppt sé við fyrirtæki sitt, það sé eðlilegt að reynt sé að byggja á góðum árangri annarra. Hins vegar telur Grímur óeðlilegt að opinbert fyrirtæki skuli standa í slíkum samkeppnisrekstri. Heppilegast væri ef Orkuveita Reykjavíkur tæki sem minnstan þátt í verkefninu.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira