Innlent

Góðar og slæmar fréttir í skýrslu

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í samtali við fréttastofu Bylgjunnar að í skýrslu Hafnrannsóknastofnunar um nytjastofna sjávar væru bæði góðar og slæmar fréttir. Góðu fréttirnar væru gríðarlega mikill vöxtur ýsustofnsins og í ufsans og að ýmsir aðrir stofnar væru í þokkalega góðu ástandi, eins og síldin. Friðrik sagði að menn hefðu vonast til að ekki yrði samdráttur í þorskinum á næsta fiskveiðiári en það væri löngu vitað að undanfarna áratugi hefði verið sótt of fast í stofninn og nýliðun hefði ekki verið nógu góð síðustu tuttugu árin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×