Flugvöllurinn festur í sessi 13. apríl 2005 00:01
Með samgönguáætlun er verið að festa Reykjavíkurflugvöll enn frekar í sessi. Þetta staðhæfði Pétur Blöndal alþingismaður þegar hann hjólaði í flokksbróður sinn, Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra, vegna stefnumörkunar um nýja flugstöð. Framkvæmdir eru boðaðar við flughlað á austursvæði Reykjavíkurflugvallar árin 2007 og 2008 og miðað við að þar verði byggð ný flugstöð, samkvæmt samgönguáætlun sem nú er til umræðu á Alþingi. Athygli vakti að flokksbróðir samgönguráðherrans, Pétur Blöndal, gagnrýndi þessi áform en ráðherrann varði þau með því að vísa til eldri ákvörðunar þingsins. Hann sagði að tekin hafi verið ákvörðun um endurbyggingu flugvallarins með atkvæðum allra viðstaddra þingmanna. Borgaryfirvöld í Reykjavík hefðu síðan veitt samþykki sitt. Pétur svaraði því til að ákvörðunin hafi verið tekin um að endurbyggja flugvöllinn - ekki reisa nýjan. Og hann sagði að með samgönguáætluninni væri verið að festa Reykjavíkurflugvöll enn frekar í sessi á einu dýrasta byggingarsvæði landsins, staðsetning sem Bretar hafi valið í Síðari heimsstyrjöld, auk þess sem nú ætti að byggja nýja flugstöð. Samgönguráðherra sagði að endurbygging flugvallarins hafi verið gerð með leyfi borgaryfirvalda og því væri ekki verið að ganga gegn hagsmunum borgarinnar.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira