Skæruliðar afvopnast 13. desember 2005 06:15 Andstæður. Liðsmenn Hinna sameinuðu varnarsamtaka Kólumbíu afvopnuðust fyrir framan stóra mynd af Maríu mey. Skæruliðarnir fá flestir sakaruppgjöf.
Tvö þúsund liðsmenn hinna Hinna sameinuðu varnarsamtaka Kólumbíu (Autodefensas Unidas de Colombia eða AUC), sem eru öfgahægrisinnuð skæruliðasamtök, lögðu niður vopn í gær. Skæruliðarnir afvopnuðust á lóð víggirts sveitabæjar um 260 kílómetrum norður af Bógóta, höfuðborg Kólumbíu. Auk þess að afhenda stjórnvöldum byssur létu þeir af hendi tvær herþyrlur. Mennirnir, sem lögðu niður vopn í gær, voru í svokölluðum Bólívar-armi skæruliðasamtakanna sem talinn er hafa haft hvað nánust tengsl við eiturlyfjabaróna. Foringinn, Carlos Jimenez eða Macaco, er sagður hafa slegið skjaldborg um Norte Valle-hringinn, en hann hefur tekið við af Medellin- og Cali-hringjunum sem stærsti eiturlyfjahringur Kólumbíu. Í skiptum fyrir að leggja niður vopn fá óbreyttir liðsmenn samtakanna sakaruppgjöf. Hinum hærra settu hefur verið lofað mildum dómum. Þó flestir fagni því að skæruliðarnir hafi lagt niður vopn hafa mannréttindasamtök lýst yfir óánægju með að þeir fái uppgjöf sakar. Benda þau á að Hin sameinuðu varnarsamtök Kólumbíu beri ábyrgð á einum verstu mannréttindabrotum í sögu Kólumbíu og þó víðar væri leitað. Þau hafi meðal annars staðið fyrir fjöldamorðum á almennum borgurum. Allt frá árinu 2003 hafa liðsmenn Hinna sameinuðu varnarsamtaka Kólumbíu verið að afvopnast. Rekja má upphafið til friðarsamnings sem Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, gerði við þau. Fyrir fáeinum árum er talið að um 20 þúsund skæruliðar hafi verið í samtökunum en eftir gærdaginn er talið að um sjö þúsund liðsmenn séu í þeim. Þó gerður hafi verið friðarsamningur árið 2003 hafa stjórnvöld oft sakað samtökin um að hafa brotið gegn honum. Það eru ekki nema átján mánuðir síðan stjórnarherinn hætti skyndilega við að gera loftárás á búðir Bólívar-armsins. Þá höfðu stjórnvöld fengið nóg af sviknum loforðum samtakanna, en eftir að skæruliðarnir rændu almennum borgurum og fluttu þá í búðirnar til að nota sem mannlega skildi hætti stjórnarherinn við að gera loftárás. Hin sameinuðu varnarsamtök Kólumbíu voru stofnuð á níunda áratugnum. Hafa þau barist gegn öðrum skæruliðasamtökum sem kalla sig Byltingarher Kólumbíu (Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia eða FARC). Byltingarher Kólumbíu hefur síðan árið 1964 reynt að bola stjórnvöldum frá völdum í þeim tilgangi að koma á marxískri stjórn. Liðsmönnum Hinna sameinuðu varnarsamtaka Kólumbíu, sem nú fá almenna sakaruppgjöf, er boðið að fara í starfsþjálfun. Þá fá þeir um 10 þúsund krónur á mánuði frá ríkinu næstu tvö ár. Ernesto Baez, talsmaður Hinna sameinuðu varnarsamtaka Kólumbíu, var einn af þeim sem lögðu niður vopn í gær. Hann hyggst bjóða sig fram til þings.
Erlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira