Erlent

Milljón börn munaðarlaus

MYND/Reuters
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, ítrekaði í dag að leggja yrði allt kapp á að enda borgarastyrjöldina í Úganda hið fyrsta. Hátt í milljón börn hafa orðið munaðarlaus í kjölfar styrjaldarinnar og 25 þúsund drengir og stúlkur hafa verið hneppt í þrælahald. Stríðið í Úganda, sem staðsett er í Mið-Afríku, hefur geisað í nítján ár í norðurhluta landsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×