Útblástur koltvísýrings aukist um 14,5% í Reykjavík 20. desember 2005 00:01 MYND/E.Ól.
Í nýrri skýrslu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar er fjallað um sex svokallaða megin umhverfisvísa og gefa fimm þeirra vísbendingar um áhrif samgangna á landi á umhverfið í höfuðborginni. Sá sjötti snýr hins vegar að orkunotkun. Í skýrslunni greinir meðal annars frá því að vetrargildi svifryks hafi farið lækkandi frá árinu 1995, en séu einungis skoðuð síðastliðin þrjú ár kemur í ljós að svifrykið hefur aukist. Nýverið hvatti Umhverfissvið Reykjavíkurborgar þá sem eru viðkvæmir í öndunarfærum að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum vegna mikils svifryks en svifryksmengun í Reykjavík hefur um tuttugu sinnum farið yfir heilsuverndarmörk á árinu. Einnig segir í skýrslunni að útblástur koltvísýrings frá vegsamgöngum í Reykjavík hafi vaxið um hátt í fimmtán prósent á árunum 1999 til 2004. Þó dró úr útblæstrinum milli áranna 2003 og 2004. Heildarfjöldi ökutækja í borginni hefur vaxið um fimmtán prósent á tímabilinu, þar af hefur bensínfólksbílum fjölgað um níu prósent og díselfólksbílum um tæp fimmtíu og tvö prósent. Þá kemur fram í skýrslunni, hvað orkunotkun borgarbúa varðar, að á milli áranna 2002 og 2004 hefur orkunotkun, mæld í kílówattstundum á hvern íbúa Reykjavíkur, aukist um tæp fimm prósent. Orkunotkun vegna brennslu jarðefnaeldsneytis hefur aukist um 12%, rafmagnsnotkun um 7% en notkun á heitu vatni hefur nánast staðið í stað.
Fréttir Innlent Mest lesið Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira