Árið 2005 það heitasta á norðurhveli 17. desember 2005 10:30 Ísbirnir eru meðal þeirra dýra sem stafar hætta af hnattrænni hlýnun. MYND/Getty Images
Það stefnir í að árið 2005 verði það heitasta á norðurhveli frá því að mælingar hófust. Þá er útlit er fyrir að það verði það næstheitasta frá upphafi mælinga ef horft er til heimsins alls. Þetta sýna frumniðurstöður veðurfræðinga í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þar kemur fram að frá ársbyrjun og fram til nóvemberloka hafi meðalsjávarhiti og lofthiti hafi hækkað um 0,6 gráður miðað við meðaltalshita á árinum 1880 til 2004. Hitinn er örlítið minni en árið 1998 en þá hafði veðurfyrirbærið El Ninjo áhrif til hækkunar á meðaltalshita í heiminum. Þá hafa tíu heitustu árin frá því að mælingar hófust á 19. öld komið á síðustu ellefu árum. Þá benda niðurstöðurnar til þess að hitastig hafi hækkað meira á norðurhveli jarðar en suðurhvelinu. Samkvæmt breskum veðurfræðingum var meðalhitastigið á norðurhveli frá ársbyrjun til nóvemberloka 0,65 gráðum fyrir ofan langtímameðaltal og þar með það mesta sem mælst hefur. Meðalhiti á suðurhveli á sama tímabili var hins vegar 0,32 stigum yfir langtímameðaltali. Þá sýna gervihnattarmyndir að heimskautaísinn á norðurhveli hefur aldrei verið minni að flatarmáli en í september síðastliðnum frá því að mælingar hófust í lok áttunda áratugarins. Sömu sögu er ekki að segja af heimskautísnum á suðurhveli jarðar en þar hafa litlar breytingar orðið á flatarmáli íssins. Þetta þykir benda til þess að norðurhluti jarðar hitni hraðar en suðurhlutinn. Vísindamenn benda sem fyrr á að helsta ástæðan fyrir vaxandi hita í heiminum sé mengun að völdum gróðurhúsalofttegunda og búast við að hitinn haldi áfram að aukast. Aukinn hiti hafi meðal annars áhrif á dýralíf á norðurslóðum og vísindamenn segja ísbirni sérstaklega viðkvæma fyrir breytingunum. Heimkynni þeirra minnki með minnkandi heimskautaís og þar með minnki möguleikar þeirra á að afla sér fæðu og fjölga sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira