Flýja öfund út í meint auðæfi 12. desember 2005 21:00
Foreldrar barns númer áttatíu og eitt, sem bjargaðist á undraverðan hátt úr flóðbylgjunni miklu á Srí Lanka, eiga erfitt, því að fólk heldur að þeir séu svo ríkir. Abilass Jeyjaradja vann hugi og hjörtu heimsbyggðarinnar þegar hann fannst á lífi, tveggja mánaða gamall, eftir flóðbylgjuna sem kostaði yfir 170 þúsund manns lífið, 26. desember síðastliðinn. Hann var fluttur á sjúkrahús, þar sem hann fékk nafnið Barn 81. Níu foreldrar gerðu tilkall til hans og forræði yfir honum varð mikið hita- og tilfinningamál. Foreldrar hans lentu í harðvítugum deilum við sjúkrahúsið, og fengu hann ekki afhentan fyrr en eftir sjö vikur, þegar DNA prufur sýndu að hann var þeirra barn. Ógæfa fjölskyldunnar, í dag, felst í því að ABC sjónvarpsstöðin bauð fjölskyldunni til New York, þar sem þau komu fram í sjónvarpsþættinum Good Morning America. ABC borgaði fyrir þau ferðir og uppihald og lagði þeim til lúxusbifreið til að skoða sig um í New York. Fljótlega eftir heimkomuna fór að bera á öfund nágranna, sem töldu víst að fjölskyldan væri orðin rík af öllu umstanginu. Foreldrar Abilass gáfust loks upp á svívirðingum og jafnvel líkamsárásum, fólks sem öfundaðist yfir meintu ríkidæmi þeirra. Þau fluttu því í annað þorp, þar sem þau leigðu sér víggirt hús. En íbúarnir í því þorpi vita nú hver þau eru, og þeir eru líka orðnir öfundsjúkir yfir hinum meintu auðæfum.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Sjá meira