Innlent

Blóðbankinn lýsir eftir hetjum

MYND/GVA

Blóðbankinn lýsir eftir hetjum og óskar eftir blóði til að geta brugðist við alvarlegum slysum, náttúruhamförum og þvíumlíku. Um níu þúsund manns gefa blóð hér á landi reglulega en það er um fimm prósent þjóðarinnar. Í tilkynningu frá Blóðbankanum segir að alls þurfi sjötíu blóðgjafir á dag til að bankinn geti sinnt hlutverki sínu og eru því allir hvattir til að gefa blóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×