Innlent

Ekki fuglaflensa á Chios

Talsmenn Evrópuráðsins greindu frá því í morgun að grunur um fuglaflensu á grísku eyjunni Chios hafi ekki átt við rök að styðjast. Upphaflegar rannsóknir bentu til þess að fugl sem drapst þar um miðjan mánuðinn hafi verið smitaður af H5N1-stofni fuglaflensu. Frekari rannsóknir leiddu í ljós að svo var ekki. Útflutningsbanni á fuglakjöti frá eyjunni hefur verið aflétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×