Innlent

Akureyringar fá nýjan slökkvibíl

Slökkvilið Akureyrar hefur tekið í notkun nýjan slökkviliðsbíl sem er sagður einn sá öflugasti á landinu. Bíllinn er með þrjú þúsund lítra vatntank og dælu sem getur dælt fimm þúsund lítrum á mínútu. Dælan er því svo öflug að hún getur tæmt vatntankinn á þrjátíu og sex sekúndum.

Bíllinn er með tvöföldu húsi og sætum fyrir fimm slökkviliðsmenn sem geta farið í reykköfunarbúnað í sætum sínum þegar þeir eru á leiðinni að berjast við eld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×