Innlent

Fimmtíu starfsmenn til skoðunar

Yfirtrúnaðarmaður starfsmanna Kárahnjúkavirkjunar, Oddur Friðriksson, segir ljóst að Pólverjarnir sem starfað hafa hjá starfsmannaleigunni 2B við Kárahnjúka, séu ekki einu starfsmenn sama fyrirtækis sem brotið hafi verið á.

Fulltrúar Verkalýðshreyfingarinnar víða um land hafa í dag farið á vinnustaði þar sem um 40-50 pólskir starfsmenn 2B eru við vinnu í þeim tilgangi að leita af sér grun um að brotið sé á réttindum þeirra líkt og starfsmanna sama fyrirtækis við Kárahnjúka. Staðfest er að sögn Odds að farið hafi verið í óleyfi inn á launareikninga starfsmanna 2B við Kárahnjúka og þaðan teknir út peningar auk þess sem verkstjórum fyrirtækisins sem norfærir sér þjónustu þeirra hafi verið sagt að lemja þá, hlýddu þeir ekki fyrirmælum.og þaðan teknir peningar án leyfis starfsmannanna.

Oddur kveðst fljótlega eftir að mál Pólverjanna á Kárahnjúkum lágu fyrir, hafa farið að kanna hversu margir starfsmenn væru hér á vegum starfsmannaleigunnar. Sú athugun hafi leitt í ljós að á vegum leigunnar hér á landi séu nú á milli 40 og 50 starfsmenn. Oddur kveðst hafa sett sig í sambanf við hluta þeirra og segir hann þau samtöl staðfesta að fyrirtækið beiti sömu aðferðum í þeim tilfellum.

Þorbjörn Guðmundsson, formaður Samiðnar, segir verkalýðshreyfinguna hafa eytt deginum í kanna hagi og kjör þessara starfsmanna sem eru víðs vegar um landið við byggingarvinnu. Hann vildi ekkert gefa upp um þær kannanir að svo stöddu en sagði ljóst að ASÍ myndi höfða mál á hendur fyrirtækinu 2B vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×