Erlent

582 konur í framboði í Afganistan

582 konur gefa kost á sér í þingkosningum í Afganistan sem fara fram á sunnudaginn. Áður en Bandaríkjamenn réðust inn í Afganistan haustið 2001 var konum bannað að taka þátt í stjórnmálum í landinu. Af 249 sætum í neðri deild afganska þingsins eru sextíu og átta frátekin fyrir konur. Konur hafa auk þess verið hvattar sérstaklega til þess að gefa kost á sér. Frambjóðendum eru kennd undirstöðuatriði lýðræðisins og er stefnan sú að þær sem ekki ná kjöri fari á sínar heimaslóðir og kenni nágrönnum sínum og vinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×