Erlent

Aspirín kemur hugsanlega að gagni

Smáir skammtar af aspiríni koma hugsanlega í veg fyrir aukaverkanir af völdum gigtarlyfsins Vioxx sem var tekið af markaði í fyrra. Ný rannsókn lækna við Duke-háskólann í Bandaríkjunum bendir til þess að sé aspirín tekið samhliða gigtarlyfinu hverfi aukaverkanirnar sem voru svo alvarlegar að talið er að um hundrað þúsund manns hafi látist í Bandaríkjunum eftir að hafa tekið lyfið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×