Fagnar loforðum um fjárveitingu 8. september 2005 00:01
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar fagnar loforðum um fjárveitingu upp á einn og hálfan milljarð króna til að bæta úr málum geðfatlaðra. Hann telur líklegt að peningarnir dugi til að koma málefnum geðfatlaðra í viðunandi horf. Einum milljarði af söluhagnaði Símans hefur verið lofað til að fjölga búsetuúrræðum fyrir geðfatlaða. Þá hefur verið tekin ákvörðun um að geðfatlaðir fái hálfan milljarð til viðbótar úr framkvæmdasjóði fatlaðra. Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir þetta stórkostlegt og lyfta geðinu á hærra plan. Í gegnum tíðina hefur mikið verið rætt um búsetuúrræði geðfatlaðra og segir Sveinn vandamálið liggja ljóst fyrir. Starfshópur skipaður fólki frá Geðhjálp, Sjálfsbjörgu og Þroskahjálp hefur unnið að greiningu á þörf geðfatlaðra fyrir félagsmálaráðuneytið. Þar kom fram að þjónustan verður að vera einstaklingsmiðuð. Fólk verður að hafa raunverulegt val varðandi búsetu, atvinnu, menntun, tómstundir og að stofna fjölskyldu. Sveinn segir mikilvægt að umönnun eða einhverskonar þjónusta fylgi búsetu þar sem þakið eitt og sér dugi ekki. Hann sagði að í dag væru mjög margir einstaklingar sem ekki eru á götunni en fá ekki neina liðveislu. Þeir eru með þak yfir höfuðið en fá ekki þá þjónustu sem á þarf að halda til að lifa bærilegu lífi. Hluti peninganna á að fara í að rétta af hlut þessa einstaklinga. Á höfuðborgarsvæðinu eru hátt í fjörtíu geðfatlaðir á götunni þótt þeim hafi farið fækkandi síðustu ár. Sveinn telur peningana sem lofað hefur verið duga til að mæta þörf geðfatlaðra þó nákvæm kostnaðaráætlun hafi ekki verið gerð.
Fréttir Innlent Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Fleiri fréttir Vilja ábendingar um kettlingamyllur og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Sjá meira