Innlent

Sjávarútvegsráðherra í fjármálin

Klukkustund áður en Davíð Oddsson tilkynnti brotthvarf sitt úr stjórnmálum vissi Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra að hann væri á leið í fjármálaráðuneytið. "Ég er ánægður með breytingarnar en mun sakna verkefna og samstarfsmanna í sjávarútvegsráðuneytinu, en það er líka spennandi að taka við nýjum verkefnum," sagði Árni eftir að breytingarnar höfðu verið kynntar. Spurður um hvort starfið sem fjármálaráðherra yrði eins krefjandi eftir að erlendar skuldir yrðu niðurgreiddar sagði Árni: "Ég tel það verða enn tilkomumeira. Svigrúmið til að gera jákvæða hluti verður meira og auðveldara um vik að gera hluti sem styrkja hagkerfið og atvinnulífið." Árni sagði erfitt að átta sig á því að Davíð hverfi úr landsmálunum. Hann hefði fylgt honum alla sína þingtíð: "Nú þarf að venja sig á að vera í pólitík án Davíðs, en vonandi tekst okkur það vel." Árni styður Geir H. Haarde, núverandi fjármálaráðherra, til formennsku í flokknum, en hafði í gær ekki leitt hugann að því hvort hann gæfi kost á sér í embætti varaformanns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×