Hátt í milljón við messu páfa 21. ágúst 2005 00:01
Allt að ein milljón ungmenna frá tæplega tvö hundruð löndum, hlýddi á útimessu Benedikts sextánda páfa í Marienfeld í Þýskalandi í dag. Messan var lokapunktur fyrstu heimsóknar Benedikts til annars lands og brýndi hann fyrir ungdómnum að í trúnni sé ekki hægt að velja og hafna. Heimsmót kaþólskrar æsku var hugmynd Jóhannesar Páls páfa annars sem hrinti henni í framkvæmd fyrir tuttugu árum. Síðan hefur heimsmótið stækkað og vaxið og að þessu sinni voru hátt í milljón ungmenni, flest á aldrinum 16 til 25 ára, sem komu saman í nágrenni Kölnar og var hápunkturinn messan í dag. Flestir komu sér fyrir á túnunum í kringum messustaðinn í Marienfeld kvöldið áður og sváfu undir berum himni til að vera vissir um að missa ekki af páfa. Benedikt páfi hefur í þessari fyrstu heimsókn sinni rætt við leiðtoga annarra trúarbragða í Þýskalandi og hafa þýsk dagblöð eftir gestgjöfum hans að páfi sé greinilega afar ánægður með að fá tækifæri til að heimsækja föðurland sitt - þýskur matur hafi verið á borðum í hvert mál, lifrarpylsa og annar tilheyrandi bæverskur matur, en þar er páfi alinn upp. Í útimessunni í dag lagði páfi áherslu á að kaþólsk trú væri ekki neytendavara þar sem hægt væri að velja sér það sem manni líkaði og sleppa öðru heldur gilti reglan um allt eða ekkert. Hann þótti komast vel frá predikuninni og ná að sýna á sér mannlega og mýkri hlið en hann er þekktur fyrir. Hann þykir þó eiga nokkuð langt í land með að ná jafnvel til fólksins og forveri hans Jóhannes Páll. Páfi tilkynnti einnig að næsta heimsmót kaþólskrar æsku verði haldið í Sydney í Ástralíu að þremur árum liðnum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira