Áhrif Vioxx rannsökuð hérlendis 20. ágúst 2005 00:01
Lyfjarisinn Merck & co. telur kviðdóminn í Texas hafa komist að rangri niðurstöðu þegar hann ákvað að fyrirtækinu bæri að greiða ekkju manns sem hafði dáið úr hjartaáfalli sextán milljarða króna. Ekki er vitað um dauðsföll af völdum Vioxx-lyfsins hérlendis en rannsókn er í bígerð um hvort slíkt hafi hent. Skaðabæturnar sem dæmdar voru Carol Ernst á föstudaginn teljast í ríflegra lagi, eða sextán milljarðar króna en Robert, eiginmaður hennar, lést úr hjartaáfalli eftir að hafa tekið verkjalyfið Vioxx. Allar líkur eru hins vegar taldar á að bótafjárhæðin verði á endanum 1,6 milljarður króna þar sem lög í Texas kveða á um að bætur sem fyrirtæki er dæmt til að greiða í refsingarskyni megi ekki vera meira en tvöfalt hærri en efnhagslegur skaði sem af dauðsfallinu hlýst. Merck hefur þegar sagst ætla að áfrýja dómnum enda telur fyrirtækið niðurstöðu kviðdómsins ekki vera nægilega vel rökstuddan út frá vísindalegu sjónarmiði. Mikið er í húfi því þúsundir málsókna bíða fyrirtækisins vegna dauðsfalla sem sögð eru stafa af Vioxx-neyslu. Vioxx er í flokki svonefndra COX-2 hemla. Það var tekið af markaði hérlendis fyrir um ári síðan þegar grunur vaknaði um að neysla þess gæti verið skaðleg en það hafði þá verið til sölu síðan 1999. Ekki er vitað um neina Íslendinga sem taldir eru hafa látist af völdum þess. Vegna málsins undibýr hins vegar Lyfjastofnun, í samvinnu við Landspítalann og landlæknisembættið, rannsókn þar sem skoðað verður hvort um slíkt geti verið að ræða með því að keyra saman í gagnagrunni notkun á COX-2 hemlum og skráðum hjartaáföllum síðustu árin. "Það er mjög erfitt að fullyrða nokkuð í þessum efnum því hjartaáföll geta komið fyrir hvenær sem er. Undirliggjandi sjúkdómur getur verið orsökin eða eitthvað annað. Það er mjög erfitt að segja að eitthvert tiltekið lyf hafi valdið áfallinu," segir Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar. Hún ítrekar mikilvægi þess í þessu sambandi að heilbrigðisstarfsmenn tilkynni um allar aukaverkanir lyfja sem þeir frétta af. >
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira