Innlent

Gámar fuku í sjóinn

Þakplötur losnuðu af húsum og vinnupallar tókust á loft þegar strekkingsvindar léku um höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin í gærmorgun. Garðhúsgögn, grill, trampólín og skjólveggir fuku úr görðum og tjaldvagnar færðust úr stað á bílastæðum. Þá losnuðu tveir bátar frá bryggju í Fossvogi og rak á fjörur á Álftanesi. Að líkindum voru þó markverðustu áhrif hvassviðrisins þau að tveir gámar fuku af hafnarbakkanum í Kópavogi og út í sjó. Rak þá upp á Löngusker í Skerjafirði. "Fólk er ekki undir þetta búið á þessum árstíma," segir Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Fjörutíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum gærdagsins sem hófust um átta leytið á Suðurnesjum og um ellefu á höfuðborgarsvæðinu. "Menn eru með lausa hluti á byggingasvæðum sem ekki er búið að fergja og því takast þeir á loft þó að vindurinn sé kannski ekki mjög mikill," segir varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík en á hans borð höfðu borist örfáar tilkynningar um fjúkandi hluti. Fréttir af veðrinu fóru misjafnlega í menn og eru dæmi um að fólk hafi ekki hætt sér út úr húsi. "Það hringdi hingað ung kona því hún náði ekki sambandi við almannavarnir. Hún vildi fá upplýsingar um hvort henni væri óhætt að fara úr Grafarvoginum suður í Kópavog," segir varðstjórinn. Hvassviðrið þurfti ekki að koma nokkrum manni á óvart, því hafði verið spáð og veðurfréttamenn raunar hvöttu fólk til að huga að lausum munum. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir vind í sterkustu hviðunum í gær hafa mælst 43 metrar á sekúndu. Var það um hádegisbil undir Hafnarfjalli. Vindur hafi hins vegar verið að jafnaði um 20 metrar á sekúndu. Óli vill ekki ganga svo langt að kalla lægðina fyrstu haustlægðina en neitar því ekki að á henni sé haustbragur. "Ætli síðsumarslægð sé ekki nærri lagi," segir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×