Sárfættir en sáttir 5. ágúst 2005 00:01
Þeir voru sárfættir en sáttir, tvímenningarnir sem hafa gengið hringveginn undir kjörorðinu „Haltur leiðir blindan“ þegar síðustu kílómetrarnir voru farnir í dag. Fréttastofan hitti þá Bjarka og Guðbrand við Leirvogsá í dag þar sem þónokkur fjöldi fólks hafði slegist í för með þeim síðustu kílómetrana. Þeir hófu ferðalagið þann 20. júní og hafa gengið um 24 kílómetra að meðaltali dag hvern. Eitt af því sem gerir þá Bjarka og Guðbrand sérstaka er að Bjarki er hreyfihamlaður og Guðbrandur nær blindur. Þeir hafa ekki látið það trufla sig mikið en aðaltilgangur ferðalagsins var að vekja athygli á málefnum fatlaðra barna og barna sem eiga við erfið og langvarandi veikindi að stríða. Þeir hafa lagt leið sína á staði þar sem börn með sérþarfir dvelja, vakið athygli á aðgengi og öryggi barna á ferðamannastöðum og rætt við fólk á förnum vegi. Sá fjöldi fólks sem þeir hafa kynnst á leiðinni og það að málefnin sem þeir standi fyrir hafi komist til skila finnst þeim félögum standa upp úr. Þótt þeir hafi nú lagt 1098 kílómetra að baki þá verður ekki lagst með fætur upp í loft. Bjarki ætlar að gefa út barnabók og Guðbrandur, sem er nuddari, kennari og bóndi, leggst á kaf í vinnu því hann segir verkefni ekkert hafa horfið þótt hann hafi „stungið af“. Aðspurðir hvort þeir væru orðnir sárfættir játti Bjarki því en bætti við: „No pain, no gain.“
Innlent Menning Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira