Innlent

Gætu misst af fyrstu leikjum

Margir hafa skráð sig undanfarna daga fyrir ADSL-tengingu hjá Símanum vegna enska boltans og eru nú um þrjú þúsund manns á biðlista. Allt að mánaðarbiðtími er eftir tengingunni en aðeins hálfur mánaður er þangað til leiktímabilið hefst. "Við ætlum að gera okkar besta til að tengja alla áhorfendur enska boltans áður en tímabilið byrjar," segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafultrúi Símans. "Við erum búin að bæta við starfsfólki í uppsetningum." Hún segir ekki alla á biðlistanum vera að bíða eftir boltanum, en vissi ekki nákvæmlega hve hátt hlutfall þeirra er. "Þetta er skilgreindur hópur hjá okkur sem búið er að setja í forgang. Ef einhverjir fá ekki tengingu tímanlega verður sérstaklega tekið á því." Þeir sem ekki hafa breiðband verða að kaupa ADSL-þjónustu Símans til að gerast áskrifendur að enska boltanum og þurfa að skipta yfir til Símans hafi þeir áður verið með ADSL hjá öðrum fyrirtækjum. "Margir hafa kvartað undan þessu hjá okkur," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. "Er ekki þarna komin skýring á því af hverju Síminn vildi gerast hluthafi í Skjá einum?" Jóhannes segir að Síminn hafi þarna með fyrirtækjakaupum náð einokunarstöðu á þessari þjónustu. "Þeir sem eru áhorfendur enska boltans hugsa sig ekki tvisvar um áður en þeir fara yfir til Símans." Jóhannes segir samtökin telja þetta mjög hæpið út frá samkeppnissjónarmiðum. "Skjár einn kaus að dreifa enska boltanum um ADSL-kerfi og breiðband Símans," segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. "Því ekkert óeðlilegt við það að hann sé eingöngu á kerfum Símans. Kerfið er jú með mjög mikla útbreiðslu." Eva vill sérstaklega minna áhugamenn um enska boltann á breiðbandið þar sem mun fljótlegra sé að virkja það. Um 40.000 heimili á höfuðborgarsvæðinu hafa nú aðgang að því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×