Innlent

Vilja skýrari úthlutunarreglur

Engar skýrar reglur eru til hjá Kópavogsbæ um það hvernig einstakir umsækjendur um byggingarétt eru bornir saman. Reglur bæjarins, sem finna má á www.kopavogur.is eru fyrst og fremst þau skilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla. Þó segir í þeim að draga eigi á milli jafnhæfra umsækjenda en aldrei kom til þess þegar úthlutað var á dögunum. "Það kemur mér á óvart að í öllum tvö hundruð tilvikum skuli alltaf einn umsækjandi standa upp úr," segir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. "Þegar svo margir sækja um hljóta einhver tilvik að koma upp þar sem tveir umsækjendur eru jafnhæfir til að fá sömu lóð." Um 2100 sóttu um og flestir þeirra uppfylltu öll skilyrði. Umsóknirnar hafa ekki verið formlega samþykktar á bæjarstjórnarfundi, en hann verður haldinn síðar í þessum mánuð. Hafsteinn býst ekki við því að breytingar verði gerðar á úthlutuninni. "En ég á alveg von á því að úthlutunarreglurnar verði ræddar og að menn óski eftir því að þær verði sanngjarnari og gagnsærri." Hann segir þó að erfitt sé að finna fullkomlega sanngjarna aðferð við úthlutun.. Erfitt reyndist að fá upplýsingar um það hvernig bæjarráð valdi milli umsækjenda. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í ráðinu segir fundina trúnaðarmál, en hann sagði menn hafa reynt að velja af sanngirni og með reglurnar til hliðsjónar. Hann sagðist ekkert hafa við úthlutunarreglurnar að athuga en bætti því þó við að hann væri almennt þeirrar skoðunar reglur væru því betri sem þær væru ítarlegri. Að sögn Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra eru engar sérstakar vinnureglur innan bæjarráðsins umfram úthlutunarreglurnar. "Þetta er ekki öfundsvert hlutverk sem við erum í." Hann sagði að oft hefði verið erfitt að velja einn umsækjanda úr þegar margir hefðu sótt um sömu lóð, en tekið væri tillit til margra þátta. Gunnar kveðst sáttur við reglurnar eins og þær eru og segir þær hafa verið notaðar árum saman við úthlutanir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×