Heill á húfi allan tímann 3. ágúst 2005 00:01
Víðtækri leit að erlendum ferðamanni var hætt um hádegisbilið í dag eftir að upplýsingar bárust um að hann væri heill á húfi. Jove Miguel Vipond lagði upp frá Hrafntinnuskeri í gærmorgun og ætlaði að ganga að Álftavatni. Það er aðeins fjögurra til fimm klukustunda ganga og þegar hann hafði ekki skilað sér við Álftavatn í gærkvöldi, þar sem hann ætlaði að gista, var ákveðið að hefja að honum leit. Þegar ekkert bólaði á Vipond var ákveðið að fjölga í leitarliðinu og í alla nótt og vel fram á morgun bættist við mannskapur. Upp úr klukkan átta var þyrla Landhelgisgæslunnar send af stað til að aðstoða björgunarmenn sem þá voru orðnir um eitt hundrað, auk fimm leitarhunda. Leitarskilyrði úr lofti voru takmörkuð og eins voru bæði þoka og rigning á leitarsvæðinu lengi vel. Þegar leitarmenn voru orðnir úrkula vonar um hádegisbilið bárust fregnir af ferðum Vipond á Klaustri. Við nánari athugun kom í ljós að hann hafði gist þar, án þess að afpanta gistinguna við Álftavatn. Talið er að slæm veðurskilyrði hafi orðið til þess að hann hafi ákveðið að breyta áætlun sinni og halda á Klaustur. Hægt hefði því verið að komast hjá þessari viðfangsmiklu leit ef Vipond hefði látið skálaverði á Álftavatni vita að hann ætlaði ekki að koma þangað. En þar sem veður á Laugaveginum var slæmt í gærkvöldi og nótt, suddi og bleyta og aðeins fjögurra stiga hiti, var ákveðið að taka enga áhættu, enda aðeins ár síðan erlendur ferðamaður varð úti á þessum slóðum við svipuð veðurskilyrði og í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Sjá meira