Innlent

Tilkynnt um hæð hnjúksins á morgun

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra mun á morgun, klukkan korter yfir fjögur, koma út á tröppur Stjórnarráðsins og tilkynna þjóðinni hvað Hvannadalshnjúkur er hár. Nokkru áður mun Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, laumast inn í Stjórnarráðið og hvísla leyndarmálinu í eyru forsætisráðherra og Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra. Hvannadalshnjúkur var mældur með nýjustu mælitækni í síðustu viku og á morgun fær þjóðin sem sagt að vita hvort hann er 2.119 metrar, eins og sagt er í kennslubókum, eða hvort þeirri mælingu, sem er 100 ára gömul, skeiki um einhverja metra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×