Lífið

Vann 8,8 milljarða í lottói

Einn hamingjusamasti maður Evrópu þessa stundina er að öllum líkindum Írinn sem í gær vann stærsta lottóvinning í sögu Evrópu. Fyrsti vinningur í útdrætti gærkvöldsins var að andvirði 8,8 milljarðar íslenskra króna. Aðeins einn var með allar tölur réttar og var sá miði seldur á Írlandi. Enginn hafði unnið evrópska lottópottinn síðan 20. maí og var hann orðinn nífaldur. Til samanburðar má geta þess að stærsti lottóvinningur sögunnar féll í skaut Andrew Whittakers í Bandaríkjunum árið 2002. Hann vann þá andvirði rúmlega 22ja milljarða íslenskra króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.