Hátíðarhöld fóru vel fram 30. júlí 2005 00:01
Hátíðarhöld fóru að mestu leyti vel fram á öllum útihátíðum landsins í gærkvöldi og nótt. Engin nauðgunarmál höfðu verið tilkynnt til lögreglu í morgun. Nóttin var með rólegasta móti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þó voru tveir menn teknir með lítilræði af fíkniefnum og gista þeir fangageymslur lögreglunnar. Í Herjólfsdal eru nú á milli átta og níu þúsund manns og lék veðrið við Þjóðhátíðargesti í nótt. Að sögn varðstjóra lögreglunnar í Eyjum er þar nú hið besta veður en alls eru um tuttugu lögreglumenn á vakt. Fjögur minniháttar fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt og tveir voru fluttir á slysadeild eftir slagsmál. Að öðru leyti var nóttin róleg að sögn lögreglunnar í bænum. Forsvarsmenn hátíðarhaldanna á Akureyri treysta sér ekki til að slá á fjölda fólks í bænum en segja að þar sé mjög fjölmennt. Á sjötta þúsund manns eru á unglingalandsmóti UMFÍ í Vík í Mýrdal og þar var allt með kyrrum kjörum í nótt. Á Kirkjubæjarklaustri eru um þrjú þúsund manns á óskipulagðri útihátíð og þurfti lögreglan á Vík að hafa töluverð afskipti af fólki þar vegna ölvunarláta. Á Neistaflugi í Neskaupsstað eru um tvö þúsund manns og var nóttin róleg að sögn lögreglunnar. Búist er við enn meiri fjölda en hátíðarhöld verða um allan bæ í dag. Á bindindismótinu í Galtalæk eru á bilinu tvö til þrjú þúsund manns og að sögn Sævars Finnbogasonar, framkvæmdastjóra mótsins, var nóttin róleg og menn almennt ánægðir með stemmninguna. Hann segist búast við að fólki fjölgi í Galtalæk í dag. Um 500 manns eru á Álfaborgarséns í Borgarfirði eystra og þar fóru hátíðarhöld vel fram að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum. Og nóttin var róleg í höfuðborginni að sögn varðstjóra lögreglunnar. Lítið var af fólki í bænum en í morgun voru fjórir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur.
Innlent Menning Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira