Skipuleggjendur himinlifandi 3. júlí 2005 00:01
Stærstu tónleikum sögunnar lauk um miðnæturbil í gær. Skipuleggjendur Live8 eru himinlifandi með hvernig til tókst en samtals mætti rúmlega milljón manna á tónleikana og talið er að um tveir milljarðar manna hafi séð hluta þeirra í sjónvarpi eða heyrt í útvarpi. Tónleikarnir voru ekki haldnir til að safna fé eins og síðustu Live Aid tónleikar fyrir tuttugu árum. Þeir voru fyrst og fremst til að vekja athygli leiðtoga G8-ríkjanna á kröfum almennings um að grípa til róttækra aðgerða til að útrýma fátækt og hungri í heiminum. Tuttugu og sex milljónir manna sendu sms-skilaboð til stuðnings þessum kröfum, sem ku vera heimsmet. Boðið var upp á um hundrað og sjötíu tónlistaratriði í níu löndum í fjórum heimsálfum. Mismunandi var hversu margir mættu á hvern stað - um sjö hundruð þúsund manns voru við Circo Massimo í Róm, hundruð þúsunda í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, tvö hundruð þúsund manns voru í Hyde Park í London og sömuleiðis í mótmælagöngu í Edinborg, en á Rauða torginu í Moskvu var frekar fátt og má ef til vill rekja það til þess að fjórðungur Rússa lifir undir fátæktarmörkum. Nú er þess beðið að leiðtogar G8-ríkjanna fundi í næstu viku og ákveði framhaldið; hversu mikið aðstoð við fátækustu ríki heimsins verður aukin og kannski ekki síður hvernig verður farið að því. Margir eru alfarið á móti því að senda peninga skilyrðislaust til misheiðarlegra ríkisstjórna og fella niður skuldir þeirra. Moeletsi Mbeki, bróðir Thabos Mbekis, forseta Suður-Afríku, skrifar grein í The Mail on Sunday í dag þar sem hann segir: „Að fleygja fé í afrískar ríkisstjórnir er ekki svarið - látið fólkið fá peninga til að byggja upp eigin framtíð. Það er fullfært um það sjálft.“ En Bob Geldof og félögum hefur að minnsta kosti tekist að sjá til þess að heimsbyggðin öll mun fylgjast vel með hverju skrefi G8-leiðtoganna í Skotlandi.
Erlent Menning Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Fleiri fréttir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein