Björk ánægð með Live8 2. júlí 2005 00:01
Live8 tónleikarnir hófust klukkan fimm í nótt. Björk Guðmundsdóttir var meðal fyrstu flytjenda. Tónleikarnir standa enn yfir á nokkrum stöðum. Þetta er stærsti tónlistarviðburður sögunnar og tilgangurinn er að vekja athygli á sárri fátækt í Afríku. Live8 tónleikaröðin hófst í Tókýó eldsnemma í morgun. Tíu þúsund manns sem unnu miða í lotteríi mættu á Makahari Messe leikvanginn til að hlýða á Björk og fleiri listamenn, innlenda og erlenda. Þetta var í fyrsta sinn í tvö ár sem Björk syngur opinberlega og hún olli aðdáendum sínum ekki vonbrigðum. Björk talaði síðan á blaðamannafundi og lýsti ánægju sinni með Live8. Hún sagði fólk reiðubúið að leggja mikið á sig því það hafi mikla trú á þessum málstað Jóhannesarborg var næst af stað klukkan korter í ellefu, síðan Vestur-Evrópa: Róm, París, Berlín og London. Opnunaratriðið þar var ekkert slor - hljómsveitin U2 og gamli Bítillinn Paul McCartney tóku gamla bítlalagið Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band fyrir framan meira en tvö hundruð þúsund áhorfendur í Hyde Park - og hver veit hversu marga í sjónvarpi. Nýbökuðu Íslandsvinirnir í Duran Duran komu fram í Circus Maximus í Róm, ein af fáum erlendum hljómsveitum á dagskránni þar. Í Edinborg komu saman hátt á annað hundrað þúsund mótmælendur sem marseruðu í gegnum borgina og mynduðu hring sem átti að vera tákn um hvíta armbandið, merki Live8 framtaksins. Ekki fór það þó allt friðsamlega fram. Lögreglunni lenti saman við nokkra svarta sauði en almennt gekk þetta nokkuð vel, virðist vera. Skorað var á leiðtoga G8-ríkjanna, sem koma saman til fundar í borginni í næstu viku, að skapa söguna með því að láta fátækt heyra sögunni til. „Make history, make poverty history,“ eins og Bono orðaði það. Það var nokkuð gagnrýnt hversu fáir afrískir tónlistarmenn tækju þátt í tónleikunum en Bob Geldof, upphafsmaður þeirra, sagði aðalatriðið vera að beina sjónum sem allra flestra að vandamálum Afríku og það hefði heppnast. Einu tónleikarnir í Afríku voru í Jóhannesarborg og þar voru allir listamennirnir innfæddir. Skipuleggjendur segja að um fimm og hálfur milljarður manna hafi haft möguleika á því að sjá eða heyra að minnsta kosti einhvern hluta af tónleikunum. Stór hluti þeirra sem ekki höfðu þennan aðgang eru einmitt í álfunni sem átakið allt beinist að: Afríku. En þeir sem gátu og vissu af þessu fylgdust gjarnan með. Sá sem gagnrýnir framtak eins og Live8 hlýtur eiginlega að teljast dálítill gleðispillir. Það heyrast þó gagnrýnisraddir, kannski ekki á tónleikana sem slíka, heldur boðskapinn. Mörgum sérfræðingum finnst sem verið sé að einfalda vanda Afríku um of og benda á að hingað til hafi niðurfelling skulda og óskilyrt fjárhagsaðstoð litlu áorkað og stundum orðið frekar til ills en góðs. Vandi Afríku verði ekki leystur nema innan frá, með því að útrýma spillingu og koma á lýðræðislegum stjórnarháttum sem setja hag íbúanna ofar öðru. En bjartsýni er nauðsyn, eins og Desmond Tutu biskup veit. Hann sagði við fjölmiðla í dag að nú sé tækifæri til að gera miklar breytingar í þágu fátækra og það hafi verið góð byrjun að fella niður 40 milljarða dala skuldir. „Nú er rétt að halda áfram á þeirri braut og breyta viðskiptalögunum,“ sagði Tutu.MYND/APMYND/APMYND/APMYND/AP
Erlent Menning Mest lesið „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Lífið Barnaefni fyrir fullorðna Gagnrýni Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið Birti bónorðið í Bændablaðinu Lífið „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Tónlist Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi Lífið Árný Margrét ómaði á tískupöllum í New York Tónlist Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Lífið Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lífið samstarf Fleiri fréttir „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið Birti bónorðið í Bændablaðinu Svona verður Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton „Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“ Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? „Pabbi minn gaf okkur saman“ Litrík og ljúffeng búddaskál Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Sunneva syrgir Bellu: „Ég mun alltaf sakna þín“ „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Alveg sama þótt hann tapi mörgum milljónum „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Jóhann Berg og Hólmfríður selja glæsihöllina á Arnarnesi Dóttir Arons Kristins og Láru komin með nafn Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Sjá meira