Viðtölin ekki til á upptöku 28. júní 2005 00:01
Viðtöl tímaritsins Hér og nú við Ásgerði Guðmundsdóttur, sem Eiríkur Jónsson krafðist í gær að yrðu spiluð í Íslandi í dag, eru ekki til á upptöku. Hins vegar á DV upptöku af því þegar Ásgerður staðfesti að ummæli, sem eftir henni voru höfð í því blaði, séu rétt. Þegar Stöð 2 tók hús á Eiríki Jónssyni, blaðamanni Hér og nú, í dag, til að falast eftir viðtölum sem hann vildi að yrðu spiluð í fréttaþættinum, fengust þau svör að viðtölin í Hér og nú væru ekki til á segulbandi heldur aðeins viðtölin við DV. Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í gær sagðist Ásgerður, sem kölluð hefur verið „svikna konan“ í Bubbamálinu, aldrei hafa veitt blaðinu Hér og nú viðtal. Hún segist hafa verið sorgmædd og reið og veitt samtölin að blaðamennirnir hafi veitt sér „sína samúð“. Svo spyrji þeir spurninga og hún viðurkennir í geðshræringu að því sem haldið sé fram sé satt og „bingó: það er komið viðtal.“ Þetta segir Eiríkur rangt og í Íslandi í dag í gær krafðist hann þess að spiluð yrði upptaka af viðtölum sínum við Ásgerði sem myndu staðfesta að hún færi með rangt mál. Spurður hvort það sé ekki bratt hjá honum að krefjast þess að upptakan sé spiluð þegar hún er ekki til svaraði Eiríkur: „Þetta var mjög bratt í gær jú, það er alveg rétt.“ En Eiríkur sagði samt að Mikael Torfason, ritstjóri DV, hefði undir höndum viðtöl sín og Símons Birgissonar, blaðamanns á blaðinu, við Ásgerði fyrir DV og þar mætti að minnsta kosti nálgast hluta af því sem hann lofaði í gær. Í ljós kom hins vegar að Mikael hafði ekki undir höndum nein viðtöl frá Eiríki. Símon átti hins vegar upptöku af því þegar Ásgerður staðfestir að ummæli sem eftir henni voru höfð í DV séu rétt. Þessi viðtöl fékk fréttamaður að heyra í dag og þar staðfesti Ásgerður ummæli sín. Hins vegar var ekki hægt að fá viðtölin til spilunar, eins og Eiríkur lofaði í gær, þar sem DV hefur það fyrir reglu að láta ekki viðtöl blaðamanna sinna af hendi. Ásgerður segir í dag að hún hafi ekkert við það að bæta sem hún hafi þegar sagt.
Innlent Menning Mest lesið Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Lífið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Töluðu íslensku við mannhafið Lífið Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Lífið Fárveik í París Lífið Skiptir stærðin raunverulega máli? Lífið Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Opnar sig eftir handtökuna Lífið Fleiri fréttir Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Sóley og Kormákur skáluðu í síðsumarsólinni Segir lýtaaðgerðir hennar leið til að eldast með reisn Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Opnar sig eftir handtökuna Töluðu íslensku við mannhafið Hin 93 ára Jóhanna skríður enn um garðinn til að halda honum fínum Fárveik í París Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Sjá meira