75 ára afmæli Skógræktarfélagsins 25. júní 2005 00:01
Skógræktarfélag Íslands fagnaði 75 ára afmæli sínu í Þingvallasveit í dag. Afmælishátíðin var haldin í Vinaskógi í Kárastaðalandi þar sem 75 birkitré voru gróðursett til hátíðabrigða. Skógræktarfélag Íslands var stofnað á Alþingishátíðinni á Þingvöllum árið 1930. Á Þingvöllum í dag var veðrið ekki alveg eins og skógræktarmenn í hátíðarskapi höfðu óskað sér og fór dagskráin því að mestu leyti fram undir stóru tjaldi sem var reist á svæðinu. Ýmsir ráðamenn sem tengjast félaginu, hafa starfað í skógræktarfélögum eða veitt þeim liðveislu var boðið. Þeirra á meðal var Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. Hann flutti ávarp þar sem sagði m.a. að gárungar og húmoristar hafi búið það til að ráðherrann hafi einhvernt tíma sagt að þar sem þrjú tré komi saman, þar sé skógur. „Auðvitað er það ekki rétt því það var verkefni Vigdísar Finnbogadóttur sem ég tel að hafi verið sú manneskja sem á nýjan leik hleypti krafti í skógrækt á Íslandi þegar hún varð forseti fyrir 25 árum,“ sagði Guðni Svo skundaði hersingin í Vinaskóg en hugmyndin að honum varð til á 60 ára afmæli félagins. Vigdís Finnbogadóttir tók upp þann sið í forsetatíð sinn að bjóða erlendum þjóðhöfðingjum að gróðursetja tré í Vinaskógi og þar hafa 19 erlendir þjóðhöfðingjar plantað trjám. Vigdís gróðursetti eitt tré í dag og sjá mátti á handtökum hennar að þar var alvön manneskja á ferð. Auk hennar kom Guðni og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og formaður Þingvallanefndar, að gróðursetningunni. Fyrir röskum hundrað árum hófst skipuleg skógrækt á Íslandi og margt hefur áunnist. Skógar þekja nú um 1,3 prósent landsins og munu ef til vill tvöfaldast á næstu hundrað árum, ef miðað er við þann fjölda plantna sem nú er gróðursettur árlega.
Innlent Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira