Salka Valka á fjalirnar 14. júní 2005 00:01 "
Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni, enda sagan mjög þýðingarmikil fyrir mig," segir Edda Heiðrún Bachman sem leikstýrir í haust uppfærslu á Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Stöð 2 hitti leikstjórann og leikara á Gljúfrasteini í dag. Salka Valka er þroskasaga Sölku og pólitísk ástarsaga hennar og Arnaldar sem leikinn er af Sveini Þóri Geirssyni. Þá mun Halldóra Geirharðsdóttir fara með hlutverk Sigurlínu og Ellert Ingimundarson með hlutverk Steinþórs. Þegar bókin kom út í fyrsta sinn, á árunum 1931-32, voru mikil stéttaátök og kreppa á Íslandi. Sagan er heimild um þessa tíma og áhuga skáldsins á högum íslenskrar alþýðu. Edda Heiðrún mun leikstýra verkinu sem sett verður upp í Borgarleikhúsinu í haust en bókin hefur lengi verið í uppáhaldi hjá leikkonunni eða frá því hún var unglingur. Hún segir bókina hafa verið skyldulesningu á sínu heimili og kveðst lesa Sölku reglulega á nokkura ára fresti, bæði til að hressa upp á sjálfsímyndina og eins til skemmtunar. Imur Kristjánsdóttir, sem mun fara með hlutverk Sölku, segir að um draumahlutverk sé að ræða fyrir allar leikkonur. Og leikkonurnar eru sammála um að Salka búi í okkur öllum. Ilmur segir að margt fólk og ólíkt hafi sagt sér að það sjái svo mikla Sölku í sjálfu sér og hún þurfi því að reyna að finna einhvern kjarna sem allir þekki. Salka Valka hefur verið sett upp með reglulegu millibili í gegnum árin en Edda segir mikilvægt að nýjar leikgerðir séu gerðar á hverjum tíma. Frumskilyrðið fyrir því að halda þessum sögum vakandi sé að setja sögurnar inn í leikformið og nýjar leikgerðir. Gömlu leikgerðirnar séu ágætar fyrir sinn tíma og stað en sjálfsagt sé að ný kynslóð komi með nýjar áherslur; þannig nái verkið líka til nýju kynslóðarinnar.
Innlent Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Sjá meira