Innlent

Vörubifreið ók á tíu ára telpu

Vörubifreið ók á tíu ára telpu á hjóli á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á þriðja tímanum í dag. Stúlkan var að hjóla yfir á grænu en bifreiðin að taka hægri beygju þegar slysið varð. Telpan var flutt á slysadeild með slæman skurð á lærinu en talið var að hún gæti verið mjaðmagrindarbrotin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×