Innlent

Eiturefnakafarar í viðbragðsstöðu

Búist er við Lagarfossi til Grundartanga á tíunda tímanum en tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru nú í viðbragðsstöðu þar vegna ammóníaksleka sem varð um borð. Lekans varð vart aðfararnótt laugardags og var hann úr gámi. Þá var Lagarfoss skammt frá Aberdeen í Skotlandi. Skipið var stöðvað þar til búið var að ganga úr skugga um að búið væri að stöðva lekann. Ákveðið var að skipið færi að Grundartanga vegna hagstæðrar vindáttar og óskaði slökkviliðið á Akranesi eftir því að félagar þeirra á höfuðborgarsvæðinu sæju um viðbúnað. Eiturefnakafararnir eru með allan nauðsynlegan búnað og sjá til þess að fyllsta öryggis verði gætt við losun gámsins sem og að grípa til ráðstafana ef nauðsyn krefur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×